LEIÐARVÍSIR


Margir möguleikar eru í boði þegar ferðast er til Pag. Algengast er að Íslendingar fljúgi til Trieste með beinu flugi en aðrar leiðir eru einnig mögulegar. Hægt er að fljúga til Feneyja á Ítalíu, til Ljubliana í Slóveníu sjá hér eða að fljúga til Zagreb, Split eða Zadar í Króatíu. Möguleikarnir eru fjölmargir. Við mælum með því að leigður sé bíll.
more...
BÓKUN
Húsin eru leigð í viku í senn, að öllu jöfnu frá miðvikudegi til miðvikudags. Ef óskir eru um annan leigutíma reynum við að koma til móts við þær
more...
"Miðjarðarhafið - eins og það var"
Í boði eru tvö hús í hjarta gamla miðbæjar smábæjarins Pag, á eyjunni Pag í Króatíu. Pag er staðsett skammt undan strönd Króatíu um það bil fyrir miðju landinu. Eyjan er tengd meginlandinu með brú og því auðvelt að ferðast þangað með bíl. Frá Íslandi er hentugast að fara með leiguflugi Heimsferða til Trieste og aka þaðan en einnig eru í boði hagstæðar ferðir frá London og Frankfurt til Trieste, Zagreb, Split og fleiri borga í Króatíu. Lítið mál er að leigja bíl á öllum þessum stöðum og auðvelt er að komast ferða sinna um allt í Króatíu á bílaleigubíl.

Pag er smábær og enn að mestu óspilltur af nútíma ferðamennsku. Nágrannabærinn Novalja (18 km) nýtur aftur á móti talsverðrar hylli, einkum meðal ungra Króata, sem sumarleyfisdvalarstaður. Öll nauðsynleg þjónusta er til staðar á Pag, þar er að finna fjölda kaffihúsa og veitingastaða, á sumrin er starfrækt tívólí og á ströndinni - sem er 500 metra frá gamla miðbænum - er boðið upp á alla hefðbundna stranda-afþreyingu.

Pag er sérlega þægilegur staður að vera með börn. Bílaumferð er lítil og í sjálfum miðbænum er bílaumferð bönnuð. Á daginn leika börnin sér berfætt á götum og torgum án þess að foreldrar þurfi að hafa af þeim nokkrar áhyggjur og ströndin er sömuleiðis afar barnvæn.

Húsin tvö sem eru í boði eru 3-400 ára gömul steinhús sem hafa verið gerð upp í samræmi við strangar kröfur um varðveislu bygginga í gamla miðbænum. Öll hefðbundin nútímaþægindi eru í húsunum. Þess má geta að annað húsið var áratugum saman í eigu eins ástsælasta leikara Króatíu sem nýtti húsið sem sumardvalarstað.

Króatía hefur á undanförnum árum orðið einhver vinsælasti áfangastaður ferðamanna í leit að sól, sumar og strönd. Ekki spillir fyrir að landið hefur margt fleira að bjóða, svo sem kristaltæran sjó, undurfagra náttúru, glæsta menningu og miðjarðarhafsmat og -vín í hæsta gæðaflokki. Þrátt fyrir þetta er ferðamannastraumurinn enn takmarkaður og mun minni en í öðrum þekktum sólarlöndum. Margir kjósa því að lýsa Króatíu í dag sem "Miðjarðarhafinu eins og það var".


Húsin | Pag | Myndir | Bókun | Upplýsingar | Spurt og svarað | Hafðu samband
© Copyrights 2006. PAG HOMES