Um Pag
Ferðalagið til Pag
Fjarlægðir
Um Pag

Eyjan Pag er ein stærsta eyja Króatíu, 285 ferkílómetrar að stærð. Á Pag búa um 8 þúsund manns og þorri þeirra býr í nágrenni við samnefndan bæ.

Elstu rituðu heimildir um Pag eru frá árinu 976 en gamli bærinn eins og hann kemur fyrir sjónir í dag á rætur að rekja til 1443. Þá var Pag undir stjórn Feneyja sem heimiluðu bæjarbúum að byggja borgarvirki og gera ráðstafanir til að verjast hugsanlegum árásum Tyrkja. Í stað þess að byggja virkið utan um bæinn eins og hann var þá sýndu bæjarbúar stórhug í verki og réðu einn þekktasta arkitekt og byggingameistara Feneyja, Juraj Dalmatinac, til þess að skipuleggja og stjórna uppbyggingu bæjarins frá grunni. Gamli bær Pag var því byggður í einum áfanga og er sem slíkur einstök arfleifð um skipulagsstíl borga og bæja á miðöldum. Sagan segir að eftir að Dalmatinac valdi staðsetningu aðaltorgs bæjarins hafi hann staðið á torginu miðju og beðið fyrstu geisla sólar að morgni til þess að ákvarða legu aðalgötu bæjarins sem liggur frá torginu og niður að bátahöfninni.

Smíði bæjarins lauk 18. september 1474 og enn þann dag í dag er gamli bær Pag í öllum megindráttum sá sami og þá. Íbúar og stjórnvöld hafa borið gæfu til að varðveita gamla bæinn og arfleifð hans vel. Umferð bíla er bönnuð um gamla bæinn og strangar reglur gilda um varðveislu og endurbætur bygginga.

Með tímanum hefur Pag vaxið og í dag er gamli bærinn aðeins lítill hluti Pag en um leið sá lang skemmtilegasti. Hinn eiginlegi miðbær er í gamla bænum, bæði við aðaltorgið og við höfnina, þar eru kaffihúsin og veitingastaðirnir, og þar kemur fólkið saman til að spjalla, sýna sig og sjá aðra. Öll nauðsynleg þjónusta er í gamla bænum, eða rétt utan hans. Ekki spillir fyrir að aðal strönd bæjarins er aðeins í um 500 metra fjarlægð, hinu megin við bátahöfnina

Ferðalagið til Pag


Leiðin til Pag (the route to Pag, if you drive)

Frá Ítalíu fylgirðu skiltunum til Slóveníu og þaðan til Króatíu. Þegar komið er til Slóveníu þá fylgirðu "Rijeka" (Króatía) skiltunum. Nálægt Rijeka er búið að opna nýja hraðbraut til Split (á skiltunum stendur Zagreb/Split). Fylgið þessari hraðbraut þar til exit fyrir Zadar eða Pag kemur.

Þegar nær dregur á leiðinni til pag þá er um tvennt að ræða - að keyra alla leið eða að taka ferjuna. Við höfum alltaf keyrt niður eftir og ekki tekið ferjuna. Þá stefnir maður bara á Zadar og fer yfir brúna til að komast til Pag en það tekur 45 mín lengri tíma. Ef þið hittið ákkurat á ferjuna þá er sjálfsagt að taka hana.
Ferðalög / fjarlægðir (Travel and distances)

Gaman er að skreppa upp til Novalja en það er bara um 15 mín akstur.
Klukkutíma akstur er til Zadar sem er með sérstaklega fallegan gamlan miðbæ Til Sibenik er 2,5 tíma akstur en 4 tíma tekur að keyra til Split. Til Dubrovnik er aksturinn um 6-7 tímar.

Best og skemmtilegast er að gista eina nótt ef skroppið til Dubrovnik. Hægt er að panta herbergi í gegnum ferðamannamiðstöðina í miðbæ Pag.

Þjóðgarðarnir Plitvicka Jezera eru í um 2,5 tíma fjarlægð. Þeir eru ótrúlega fallegir.
Allar upplýsingar um þetta eru í ferðamannamiðstöðinni.
Kort af Pag (Map of Pag)
Húsin eru merkt með X.

↑ Top
Reach Pag

HOW TO FIND PAG / LEIÐARVÍSIR

Margir möguleikar eru í boði þegar ferðast er til Pag. Algengast er að Íslendingar fljúgi til Trieste með beinu flugi en aðrar leiðir eru einnig mögulegar.

Hægt er að fljúga til Feneyja á Ítalíu, til Ljubliana í Slóveníu sjá hér eða að fljúga til Zagreb, Split eða Zadar í Króatíu. Möguleikarnir eru fjölmargir. Við mælum með því að leigður sé bíll.

Hér er listi yfir nokkra möguleika og þau flugfélög sem þangað fljúga:

Frá Englandi:

Flugfélag(airline)Frá(from)Til(to)Tíðni (frequency)
British AirwaysGatwickDubrovnikdaglega
GatwickSplitÞrið-Fim-Sun
ManchesterDubrovnikFim-Fös-Sun
Croatia AirlinesHeathrowZagrebDaglega
HeathrowRijekaMiðvikudaga
HeathrowSplitLaugardaga
GatwickDubrovnikÞriðjud.(2), Fim, Sun
GatwickSplitMán, Fim, Föst
GatwickPulaMán
ManchesterDubrovnikÞrið, Fös
ManchesterSplitMán
ManchesterPulaMán
Aer LingusDublinDubrovnikÞrið, Fös
(27/03 - 18/05)
DublinDubrovnikÞrið, Fim, Lau
(19/05 - 15/09)


Dæmi um önnur stór flugfélög sem fljúga til Króatíu eru Lufthansa, Alitalia, Austrian Airlines, Air France, CSA og LOT.

Flug til...Flugfélag...Hvernig kemst ég til Króatíu frá...
Venice MarcoEasyjetFeneyjum
Polo
Venice TrevisoRyanairFeneyjum
TriesteRyanairTrieste
TriesteRyanairTrieste
AnconaRyanairAncona
AnconaRyanairAncona
AnconaRyanairAncona
BariRyanairBari
LjubljanaEasyjet
GrazRyanairGraz
GrazRyanairGraz
BudapestEasyjet
SkyEurope
Air Berlin


Sum Evrópsk lággjaldaflugfélög fljúga til Króatíu en ekki í beinu flugi frá Englandi, heldur með millilendingu:

Flug til...Flugfélag...Frá...Millilending...
RijekaHLXNewcastleHanover
HLXManchester
Newcastle eða
Shannon
Hanover
ZadarSkyEuropeLondon
Stansted
Bratislava eða Budapest
SplitSkyEuropeLondon
Stansted
Bratislava eða Budapest
GermanWingsLondon
Stansted eða
Gatwick
Cologne
NorwegianLondon
Stansted
Oslo
DubrovnikSkyEuropeLondon
Stansted
Bratislava eða Budapest
NorwegianLondon
Stansted
Oslo
Stavanger eða Bergen
ZagrebGermanWingsLondon
Stansted eða
Gatwick
Cologne
GermanWingsLondon
Stansted eða
Stuttgart
↑ Top